Tónleikarnir eru haldir í Viðey 1.júlí 2018
Viðey er um 1,7 km2 að stærð og rís hæst 32 metra yfir sjávarmáli. Meðfram strönd eyjarinnar sjást stórbrotnar bergmyndanir. Fegurð stuðlabergsins í Virkishöfðanum og Eiðisbjarginu er sérstaklega mikil. Æðarfugl er algengasti fuglinn í Viðey og verpir hann beggja vegna við Þórsnesið, en þar er eyjan friðuð yfir varptímann, á tímabilinu 1. maí - 1. júlí. Aðrar algengar fuglategundir í eyjunni eru fýll, grágæs, hrossagaukur, sendlingur, og tjaldur en alls verpa þar um 30 fuglategundir. Einnig má sjá hesta innan girðingar á svæðinu, en þeir eru ekki til útleigu.
Viðey er ekki hættulaus staður. Þar er að finna kletta, skurði og tjarnir sem geta verið varhugaverð. Við bendum á að börn eru á ábyrgð foreldra eða annarra forráðamanna í eyjunni.